Algengar spurningar

Hvað eru varðveittar rósir?

Varðveittar rósir (e. preserved roses, stundum kallaðar eilífðarrósir) eru alvöru rósir sem hafa verið varðveittar með sérstakri meðhöndlun. Þær visna ekki og halda lit sínum, mýkt og lögun líkt og þær hafi nýlega verið tíndar.

Hversu lengi endast varðveittar rósir?

Mánuðum og árum saman ef vel er farið með þær. Þess vegna eru þær gjöf sem endist miklu lengur en hefðbundinn blómvöndur.

Þarf að vökva varðveittar rósir?

Nei. Varðveittar rósir þurfa hvorki vatn né sólarljós. Settu þær aldrei í vatn.

Hvernig á að hugsa um varðveitta rós?

Geymdu rósina innandyra, fjarri beinu sólarljósi, raka og miklum hita. Ekki snerta krónublöðin meira en þarf og dustaðu ryk varlega af með mjúkum pensli eða köldum blæstri.

Get ég valið lit á rósinni?

Já. Stöku rósirnar og gjafaöskjurnar eru til í mörgum litum og litakóðinn er í heiti vörunnar (t.d. RED-01 rauð, PIN-05 bleik, BLU-03 blá, WHI-04 hvít). Í skreytingum er hægt að biðja um annan lit í athugasemd við pöntun.

Hvernig fæ ég pöntunina afhenta?

  • Frí heimsending á Suðurnesjum: frítt – Frí heimsending í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum
  • Heimsending á höfuðborgarsvæðinu: 2.490 kr.
  • Heimsending um land allt: 3.890 kr.
  • Dropp: 990 kr. – Sótt á Dropp-afhendingarstað að eigin vali (aðeins fyrir gjafaöskjur)
  • Sending til útlanda: 4.990 kr. – Sent með Póstinum

Hvernig get ég greitt?

Hægt er að greiða með greiðslukorti (Visa og Mastercard) eða millifærslu í greiðsluferlinu. Öll verð eru með virðisaukaskatti.

Við hvaða tilefni henta varðveittar rósir?

Þær eru vinsæl gjöf á konudaginn, Valentínusardaginn og mæðradaginn, í afmæli, brúðkaup og sem þakklætisvottur, og falleg skreyting á heimilið eða skrifstofuna allt árið.

Hvað er Beauty and the Beast rós?

Varðveitt rós undir glerkúpli, eins og rósin í ævintýrinu Fríða og dýrið. Hún er til í nokkrum stærðum í Beauty and the Beast flokknum.

Hvernig hef ég samband?

Sendu okkur póst á [email protected].